Heimalestur
06.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Fyrstu vikur skólaársins munum við ekki hafa annað heimanám en lestur. Því miður eru ekki allir farnir að temja sér þann góða sið og hvetjum við alla til að koma sér vel fyrir með lestrarbókina sína og njóta hennar. Fyrsta hraðlestrarpróf vetrarins verður í næstu viku, þannig að nú er um að gera að koma sér í gírinn.
Lestur er bestur!








