Hefndarklám

27.04.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Nk fimmtudag 30. apríl mun Þórdís Þorvaldsdóttir verða með fyrirlestur fyrir nemendur í 8.-10. bekk um; sexting, hefndarklám og netið. Um er að ræða fræðslu  um öryggi barna í stafrænum samskiptum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum ganga nektarmyndir af íslenskum börnum manna á milli á netinu, en lögreglunni hefur reynst erfitt að bregðast við vandamálinu. Dreifingin er stjórnlaus og netið gleymir engu,sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga eykur á vandann.