Haustfundur með foreldrum

18.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Næsta föstudag, 20. sept. kl. 8:00 að morgni verður haldinn haustfundur með foreldrum 10. bekkjar í stofu 213 (á efri hæð barnaskólahússins - gula hússins). Við þurfum að ræða ýmis mál varðandi samræmd próf, námsmat skólans, heimanámsstefnu og síðast en ekki síst fjáröflun vegna vorferðalags og svo þurfum við að kynna Comeniusarverkefni sem 10. bekkur tekur þátt í í vetur. Við gerum ráð fyrir að fundurinn taki 40 mínútur. Nemendur verða í kennslu annars staðar á meðan.


Við væntum þess að allir foreldrar mæti á fundinn, það er mikilvægt að allir fái upplýsingar um þau mál sem þar verða rædd.