Haustfundur í 9. bekk

12.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Haustfundur 9. bekkjar var haldinn 11. september kl. 17:30 í dansstofu skólans.


 


Dagskráin hófst með erindi Hlyns Snorrasonar lögreglumanns sem kynnti Vá-vest, forvarnarsamtök ýmissa aðila í Ísafjarðarbæ. Hann lýsti m.a. áhyggjum af því að kannanir sýna að ungmenni á Ísafirði hafi jákvæð viðhorf til kannabisefna og bað foreldra sérstaklega að ræða það við börn sín.


Hlynur skildi eftir Foreldrasáttmála frá samtökunum Heimilum og skóla og hvatti foreldra til að kynna sér hann og skrifa undir. Sumir fundarmanna skrifuðu undir hann á staðnum, sumir vildu kynna sér hann betur. Hann mun liggja frammi hjá ritara til 21. september og foreldrar geta komið og skrifað undir hann þar. Hægt er að skoða sáttmálann hér: http://www.heimiliogskoli.is/media/files/1200667030/Foreldrasattmali-barn.pdf


 


Hólmfríður Vala Svavarsdóttir sem er nýr skólaráðgjafi  í skólanum kynnti sig og starf sitt.


 


Jóna Benediktsdóttir aðstoðarskólastjóri ræddi um klámnotkun unglinga á netinu og bað fólk að ræða þau mál við börn sín, og gæta að klæðnaði stúlknanna – sem  stundum er af skornum skammti.


 


Herdís M. Hübner umsjónarkennari sagði frá erindi Brynhildar Þórarinsdóttur um „lestrarhestamennsku“ og hvatti foreldra til að styðja við lestrarþjálfun barnanna, sem m.a. felst í frjálslestrarverkefnum í skólanum.


 


 Bent var á að kennsluáætlanir eru nú komnar inn á heimasíðu skólans, grisa.isafjordur.is   en jafnframt vakin athygli á að þær eru birtar þar með fyrirvara um breytingar.


 


Námsmat hefur breyst að því leyti að virðing, samhugur og menntun sem á síðasta skólaári gilti 30% af einkunn, er nú metið til sérstakrar einkunnar en ekki blandað saman við einkunn úr prófum og verkefnum.


 


Árganginum er nú skipt í 2 hópa í öllum fögum nema stærðfræði og hluta af íslensku þar sem eru 3 hópar. Það þýðir að námshóparnir eru mjög stórir og oft mikill óróleiki. Foreldrar eru beðnir að ræða það við börn sín, hvort þau geti  hjálpast að við að skapa meiri ró og vinnufrið. Jafnframt er verið að leita lausna í skólanum.


 


Rætt var um nýja fyrirkomulagið varðandi námsgögn, þ.e. að allir fari heim með bækurnar sínar. Það þýðir ekki endilega alla leið heim, nemendur mega geyma námsgögn í læstum skápum á ganginum ef það hentar þeim betur. Aðalatriðið er að þeir bera sjálfir ábyrgð á skólabókunum sínum, þær eru ekki á ábyrgð kennaranna.


 


Foreldrar voru beðnir að fylgjast vel með mentor.is og láta vita ef aðgangsorð vantar. Ætlunin er að nýta mentor enn meira en áður og setja jafnvel alla heimavinnu þar inn.


 


Tengiliðir 9. bekkjar eru Kristín Bjarnadóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir. Þær myndu eflaust þiggja að fá einn tengilið í viðbót, svo að það yrði vel þegið ef einhver vildi bjóða sig fram.