Haustferð
20.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Ferð 10. bekkjar til Grunnavíkur
Ákveðið hefur verið að fara í haustferðina þriðjudaginn 27. ágúst n.k.
Mæting verður kl. 8:30 hjá Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar í Sundahöfn, siglt á Flæðareyri, gengið þaðan til Grunnavíkur og gist í tjöldum. Farangurinn verður settur í land í Grunnavík.
Komið verður heim síðdegis á miðvikudag.
Gist verður í tjöldum og þurfa nemendur að koma með tjald eða hafa öruggt pláss hjá öðrum. Látið umsjónarkennara vita hvernig þessu verður háttað.
Nesti:
Þriðjudagur: Nesti fyrir daginn t.d:
Samlokur
Kexkökur eða kringlur
Drykki eða drykkjarílát (fyrir vatn)
Kakóbréf
Kvöldmatur – Pylsur eða annað á grillið.
(kennarar taka með tómatsósu, sinnep, og steiktan lauk)
Miðvikudagur: Morgunverður t.d:
1 samloka
1 ávöxtur
1 kakóbréf (heitt vatn á staðnum)
Nesti fyrir daginn (sjá að ofan).
Listi þessi er til viðmiðunar en fer að sjálfsögðu eftir þörfum hvers og eins.
Áður en lagt er af stað skal borða góðan og staðfastan morgunverð.
Hafið í huga að hafa matinn hollan, næringarríkan og hvorki þungan né fyrirferðarmikinn.
Ráðlegt er að skilja GSM síma og ipod og þess háttar eftir heima.
Farangri skal skipta í tvennt. Það sem fer með bátnum í Grunnavík og það sem þarf að hafa meðferðis í göngunni frá Flæðareyri.
Nauðsynlegt er að hafa með:
Í dagpoka |
Fer með báti í Grunnavík |
Hlífðarfatnað/regnfatnað |
Tjald |
Húfu, vettlinga |
Svefnpoki |
Eitt par af ullarsokkum |
Þunn dýna |
Flíspeysa/lopapeysa |
Aukapör af ullarsokkum. |
Nesti Vaðskó eða þykka ullarsokka (vaðið yfir eina á) |
Aukanærföt (föðurland) |
|
|
Annar búnaður:
Hér metur hver fyrir sig hvað tekið er með
Í dagpoka |
Fer með báti í Grunnavík. |
Myndavél |
Vasaljós |
Áttavita |
Hnífaparasett |
Dömubindi (ef þarf) |
Drykkjarmál |
Legghlífar |
Diskur |
Sólgleraugu |
Tannbursti, tannkrem |
Göngustafir |
Plastpoki ef skór eða föt blotna |
|
Ruslapoki |
|
|
Kostnaður er 9.000 krónur á mann og greiðist við brottför.
Hægt verður að komast í húsaskjól ef þörf krefur.
Þyngið ekki farangur með gosdrykkjum og snakki. Hægt er að hafa djús í litlum brúsum þar sem gnægð drykkjarvatns er á leiðinni.
Hver og einn þarf að passa vel upp á farangur sinn, taka sitt sorp og þvo upp áhöld.
Hugið að því að taka ekki óþarfa umbúðir með ykkur.
Njótum útivistarinnar og félagsskaparins.
Góða skemmtun!
Monica og Herdís








