Haukadalur

08.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir




Í dag, þriðjudaginn 7. maí fóru krakkarnir í 10. bekk
ásamt íslenskukennurunum sínum og skólastjóra í rútuferð í Haukadal í Dýrafirði
til að kynna sér söguslóðir Gísla sögu Súrssonar.  Elfar Logi Hannesson tók á móti hópnum og
leiddi okkur um allar trissur til að upplýsa hvað gerðist hvar. Krakkarnir voru
vel með á nótunum og ættu nú að vera orðin nokkuð kunnug þessu verki enda eru
þau nú búin að sjá bæði leikritið og kvikmyndina, lesa bókina, sjá
sjónvarpsþátt um söguna og skrifa heilmikla ritgerð auk þess að heimsækja
söguslóðir með leiðsögn.


Veðrið lék við okkur, það var hlýtt og yndislegt,
vorilmur og fuglasöngur í lofti, svo allir gátu notið útiverunnar. Eftir
gönguna var farið heim í bústað hjá Elfari Loga og öllum boðið inn. Það vill
svo heppilega til að húsið er fyrrum félagsheimili svo þar var nóg pláss og
allir gátu borðað nestið sitt í makindum og fengu meira að segja heitt kakó að
drekka í boði skólans.



Þegar búið var að borða nestið var lagt af stað heimleiðis og við vorum komin að skólanum aftur fyrir hálfeitt, lukkuleg með
skemmtilega ferð.


.