Hátíð í tilefni 1.des.
28.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hin árlega 1. des. hátíð skólans verður haldin föstudaginn 29. nóvember næstkomandi. Þá verður söngleikurinn Söngvaseiður (The sound of music) frumsýndur kl. 20:00 undir leikstjórn Elfars Loga Hannessonar, en sú sýning er einungis fyrir unglingastig skólans. Á eftir munu unglingarnir svo stíga dans fram undir miðnætti.
Aðrar sýningar verða laugardaginn 30. nóvember kl. 14:00 og sunnudaginn 1. desember kl. 14:00. Miðaverð er kr. 1.500 fyrir almenning, en kr. 1.000 fyrir grunnskólanemendur og eldri borgara. Ókeypis er fyrir 6 ára og yngri.
Sú hefð hefur skapast hér í skólanum að nemendur á unglingastigi og annað starfsfólk klæði sig í betrifötin (Þó ekki í sitt fínasta púss) í tilefni dagsins.








