HREKKJAVAKA Í 6.EJ 31.10 2014

23.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun ræddum við um þá hugmynd að hafa smá hrekkjavökuþema í næstu viku.


 


Hugmyndin féll í góðan jarðveg og höfðu krakkarnir fullt af skemmtilegum hugmyndum að útfærslu.


 


Föstudagurinn 31.10 er hrekkjavökudagurinn og þá ætlum við að hafa gaman.


 


Við ákváðum að hafa svartan föstudag og mega nemendur mála sig í framan heima...gerviblóð-tennur og allur pakkinn Laughing


Við ætlum að skreyta stofuna örlítið og fara kannski í einhverja "spooky" leiki.


 


Einnig kom upp sú hugmynd að horfa á Halloween bíómynd og svo rúsínan í pylsuendanum.......hryllilegar veitingar.  


 


Ég bað þau sem langar að útbúa eitthvað matarkyns með hrekkjavökuívafi að gera það í góðri samvinnu við foreldra og alls ekki of mikið af hverju og einu.  Eins er sniðugt að sameinast nokkur saman og gera eitthvað sniðugt. Nammi og gos er ekki í boði, nammi má þó nota í skreytingar á veitingum Wink


 


Set hér tengil inn á sniðuga síðu á netinu  http://www.listotic.com/64-non-candy-halloween-snack-ideas/


 


Það er svo gaman að brjóta upp hversdagsleikann!!


 


Ef þið foreldrar hafið fleiri sniðugar hugmyndir væri gaman að heyra af þeim.


 


Bestu kveðjur, Erna, Harpa og Árný.