Gula sendibréfið.

09.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Um þessar mundir erum við í 4. bekk að vinna íslenskuverkefni tengt bókinni Gula sendibéfið eftir Sigrúnu Eldjárn. Þetta verkefni kemur úr smiðju Byrjendalæsis sem GÍ er að innleiða í íslenskukennslu á yngstastiginu.   Í dag tókum við fyrir sögupersónur  úr bókinni og unnum með þær, við skoðuðum lýsingar á þeim í textanum, skráðum niður þær upplýsingar sem við höfðum um þær og gerðum myndverk.  Krakkarnir voru mjög duglegir, þeir  unnu vel saman og voru  fljótir  að koma sér að verki.  Það er gaman að kenna svona duglegum krökkum.