Grímuball
15.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku var margt brallað í 1. bekk. Vikan byrjaði auðvitað á bolludeginum og þá var grímuball og húllumhæ hér í skólanum. Myndir af því má sjá á myndasíðunni okkar hér á síðunni. Svo erum við að vinna að veggmynd um bæinn okkar í samfélagsfræðinni. Hvað stafainnlögnina varðar þá erum við að fara að leggja inn síðustu stafina í stafrófinu núna í næstu viku og þar næstu viku. Eftir það höldum við svo áfram að vinna að ýmsu sem tengist læsisnáminu.








