Grettir
27.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kómedíuleikhúsið sýndi nemendum unglingastigsins nýjasta verk sitt, Gretti, á fimmtudaginn 22. janúar. Elfar Logi fór þar yfir sögu Grettis sterka Ásmundssonar og er óhætt að segja að hann hafi farið á kostum og hélt hann athygli unglinganna óskiptri allan tímann.
Nemendur 8.bekkjar fá því vænan skammt af fornsögunum á þessum vetri, við erum búin að lesa Egils sögu og erum að lesa Laxdælu og fengum svo þessa innsýn í sögu Grettis að auki.








