Grashausa

08.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag var handagangur í öskjunni hjá 4. bekk og gekk á ýmsu. Fyrsta árshátíðaræfingin var á sviðinu sem gekk ljómandi vel og eftir hádegi var tekið til hendinni og unnið náttúrufræðiverkefni.  Í  lok dagsins var sagarilmur í lofti og stofan og börnin (líka kennarinn) þakin í sagi og bros á öllum andlitum.   Út í glugga má nú finna 24 grashausa, mjög dúllulega og flotta.  Hvað eru grashausar ???? Grashausar eru karlar búnir til úr nælonsokki, grasfræi, sagi , glerkrukku og gúmmíteygjum. Fræ eru sett í tána á nælonsokki og síðan er sagi troðið í hann og bundið fyrir, að því loknu er andlitið búið til,  nef og eyru eru mótuð með hjálp frá  gúmmíteygjum.  Þegar karlarnir  eru tilbúnir eru þeir látnir drekka í sig vatn og svo er bara að bíða og sjá hvort við uppskerum ekki hárvöxt (grashár) á karlana .