Góðverkadagar

20.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Góðverkadagar í 4. HA


Krakkarnir í 4. HA ætla að taka þátt í góðverkadögum skátanna. Í gær fengu allir með sér heim góðverkadagbókina og allir ætla að reyna að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.


 


Markmiðið með góðverkadögum er að bæta mannlífið með


hjálpsemi og vináttu – að gera góðverk.


Velvildin og vináttan sem felst í að rétta öðrum hjálparhönd,


óumbeðið og án skilmála er dýpri og sannari en almenn


hjálpsemi eða dagleg aðstoð – við köllum það góðverk.


Umbunin getur falist í þakklætisorðum eða einlægu brosi þess


sem þiggur, en ríkulegasta umbunin er þó eigin vellíðan yfir að


hafa orðið að liði – unnið góðverk.


Góðverkin eru eins og frækorn sáðmannsins, sé þeim sáð í frjóan


jarðveg, vaxa þau og dafna á undurhraða, fjölga sér og bera


ríkulegan ávöxt.


Vertu skáti í einn dag - gerðu góðverk


 


Dagur 1.




 Jóel  sópaði herbergið sitt og setti hreina þvottinn sinn í skúffunar.  Hann knúsaði líka  mömmu sína.


 


Lena Rós vaskaði upp fyrir mömmu sína.


 


Helena nuddaði  bakið og þreytta fætur á mömmu sinni.


 


Júlíana var góð við mömmu sína.


 


Una hjálpaði pabba sínum að ganga frá eftir matinn.


 


Guðlaug hjálpaði Teresu skólaliða með ruslið. Hún hjálpaði mömmu sinni í búðinni og bar svo allar vörurnar inn úr bílnum.


 


Orri bjó til eftirmat fyrir pabba og Hákon litlabróður sinn.


 


Hrafnhildur Guðný hjálpaði Sædísi vinkonu sinni að taka til.


 


Linda Rós hjálpaði Herði og Arnari Braga að sækja húfur upp á háa hilli í tónlistarskólanum.


 


Sædís tók til og vaskaði upp fyrir mömmu sína.


 


Gylfi tók til fyrir mömmu.


 


Agnieszka eldaði matinn fyrir mömmu sína sem er handleggsbrotinn.


 


Katla hjálpaði dreng sem datt í frímínútum og hjálpaði mömmu sinni í búðinni.


 


Sara Kristín hjálpaði Margréti píanókennaranum sínum að taka dótið hennar saman og bera út í bíl.


 


Sigurður pússaði gluggana í herberginu og nokkra glugga frami.


 


Daði Rafn lagði á borð fyrir kvöldmatinn og hjálpaði til að ganga frá eftir matinn. Hann nuddaði stóru systur sína og hjálpaði mömmu sinni að losa hnút. 


 


Maja  tók til heima hjá sér.


 


Robert hjálpaði frænku að ganga frá í vinnunni.


 


Dagur 2


 


Júlíana Lind:  Ég hjálpaði mömmu að leggja á borðið og pabba að vaska upp.


 


Orri: Tók af eldhúsborðinu eftir kvöldmatinn.


 


Gylfi: Fór út með ruslið.


 


Katla: Hjálpaði mömmu í vinnunni.


 


Lena Rós: Ég nuddaði mömmu á bakinu.


 


Jóel:  Bar inn vörur úr Bónus fyrir mömmu.


 


Sara Emily: Gaf litlu systur að drekka úr pela og tók til fyrir Hörð bróður minn.


 


Patrycja Ég þvoði upp fyrir mömmu.


 


Helena:  Passaði og lék mér við Önnu.


 


Agnieszka: Vaskaði upp fyrir mömmu.


 


Guðný: Fór í búðina fyrir mömmu.


 


Robert: Var góður við mömmu.


 


Sara Kristín: Hjálpaði  Sissú  stóru systur minni að passa litla strákinn hennar sem heitir Gunnsteinn Skúli á meðan mamma,  Sissú og Helgi voru að vinna í tölvunni.


 


Linda: hjálpaði mömmu að vaska upp.


 


Una: Vaskaði upp 


 


Dagur 3


 


Robert: Fór út með ruslið.


 


Júlíana Lind: Hjálpaði ömmu gömlu að ná í Dúllu köttinn hennar.


 


Patrycja: Ég fór út með ruslið og tók til í herberginu mínu.


 


Helena: Ég vaskaði upp og lét í uppþvottavélina. 


 


Hrafnhildur Guðný: Ég passaði Patrek litlabróður minn.


 


Jóel: Ég hjálpaði til við að elda matinn.


 


Katla: Gekk frá eftir matinn.


 


Sara Kristín: Ég gekk frá eftir matinn og hjálpaði systur minni að sitja með Gunnsteinn litla frænda minn. 


 


 


Dagur 4




Hrafnhildur Una: Ég hjálpaði ömmu að losa bílinn hennar því hann var fastur.




Róbert: Ég spilaði á gítar fyrir mömmu.




Katla: Ég fylgdi bróður mínu í afmæli og passaði litla frænda minn.


 


Helenda: Ég bar fiðluna fyrir Láru frá kirkjunni og upp á Urðarveg.




Jóel: Ég ryksugaði.




Lena: Ég nuddaði mömmu mína á bakinu.




Júlíana Lind: Ég hjálpaði mömmu að setja í þvottavélina.




 




Dagur 5




Hrafnhildur Una: Ég hjálpaði mömmu að leggja á borð.




Jóel: Ég skúraði og setti hreina þvottinn minn í skúffurnar.




Katla: ég hjálpaði Tómasi að fara mað dínu upp og út í bíl.




Helena: Ég nuddaði mömmu.




Lena: Ég vaskaði upp fyrir mömmu mína:




Hrafnhildur Guðný: Ég eldaði fyrir mömmu.




Róbert: Ég var góður við vini mína. 




Júlíana: Ég fór og hjálpaði ömmu að taka til.




Dagur 6


 


Hrafnhildur Una: Ég hjálpaði mömmu að elda.


 


Júliana: Ég fór með pabba út í hjall og hjálpaði honum að taka niður harðfisk. 


 


Lena: Ég tók til eftir mig. 


 


Róbert: Ég tók til í herberginu mínu. 


 


Hrafnhildur Guðný: Ég hjálpaði mömmu í Bónus. 


 


Helena: Ég nuddaði mömmu.


 


Katla: Ég tók til í garðinum.


 


Jóel: Ég fór út með mömmu og pabba að labba og faðmaði þau.