Góður vorverkadagur að baki
31.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun hjóluðum við inn í Tunguskóg og gróðursettum 134 birkiplöntur. Krakkarnir voru mjög duglegir við gróðursetninguna og hlúðu einnig að eldri plöntum með því að reyta frá þeim. Að gróðursetningu lokinni, var komið sér vel fyrir og fengið sér nesti og leikið sér á tjaldstæðinu áður en haldið var heim á leið. Ferðin gekk vel í alla staði og ekki skemmdi veðrið fyrir, brakandi blíða og sólskin. Myndir frá ferðinni eru nú komnar inn á myndasíðuna.
Á mánudag er útivistardagur, en þá mæta nemendur við skólann kl. 9:00 og fara í ratleik um bæinn. Skóla lýkur laust fyrir hádegið. Á þriðjudag er svo leikjadagur, en þá mæta krakkarnir kl. 9:00 á Torfnesi og skóla lýkur um kl. 12:00.








