Góður dagur í dag og framundan er lokapunkturinn sjálf Litlu jólin
18.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag áttum við góðar stundir við skreytingar og föndur.
Við fórum upp á Gamla sjúkrahús sem er nú bókasafn okkar bæjarbúa. Þar tók Jóna Símonía á móti okkur og fræddi nemendur um gamla siði tengda jólahaldi okkar Íslendinga. Mjög skemmtilegt og fróðlegt erindi.
Á morgun eru það svo litlu jólin, mæting 9:00 og fer strætó svo heim rúmlega 12:00.
Ég sagði krökkunum að þau mættu taka með sér spil.
Gos, smákökur (kex ) og spariklædd.
FLEIRI MYNDIR ERU Í MYNDASAFNI BEKKJARINS http://grisa.isafjordur.is/bekkir/myndasida_6bekkur/
GLEÐILEG JÓL OG TAKK FYRIR SAMSTARFIÐ Á ÁRINU.








