Góðar gjafir

10.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á síðustu dögum höfum við fengið góðar gjafir.  Björgunarfélag Ísfjarðar færði öllum nemendum endurskinsvesti og í morgun komu kiwanismenn og færðu öllum börnum í 1. bekk reiðhjólahjálma.  Það voru þakklát börn sem tóku við þessum rausnarlegu og nytsamlegu gjöfum og senda kærar þakkir til gefenda.