Góð vika að baki
13.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikan hefur liðið hratt.
Á miðvikudaginn fóru nemendur í Norræna skólahlaupið og stóðu sig vel.
Ég fór yfir fyrirkomulag
bekkjarfunda með krökkunum í dag, þar gilda ákveðnar reglur sem á að virða.
Þær líta svona út:
„ Umferðarreglur“ samræðna á bekkjarfundi í 5 – EJ
1. Við sitjum kyrr, róleg og hljóð á fundinum.
- Við réttum upp hönd áður en við tökum til máls.
- Aðrir fá að ljúka máli sínu án þess að gripið sé fram í fyrir þeim.
- Við getum verið ósammála án þess að verða óvinir, bölva eða tala ljótt.
- Allir hafa leyfi til að tjá sig (innan skynsamlegra marka).
- Við nafngreinum ekki aðra nemendur.
- Sum mál er betra að ræða einslega við kennarann









