Gleðilegt sumar

20.04.2017 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag er sumardagurinn fyrsti, þó að jörð sé alhvít. Samkvæmt íslenskri þjóðtrú boðar það gott sumar ef sumar og vetur frjósa saman , þ.e. að hiti fari niður fyrir frostmark aðfararnótt sumardagsins fyrsta. Í Sögu daganna - hátíðir og merkisdagar  eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing segir um sumardaginn fyrsta:


Hvarvetna var fylgst með því, hvort frost væri aðfararnótt sumardagsins fyrsta, þ.e. hvort saman frysti sumar og vetur. Yfirleitt var það talið góðs viti og jafnvel álitið að rjóminn ofan á mjólkurtrogunum yrði jafn þykkur og ísskánin á vatninu þessa nótt. Í því skyni settu menn skál eða skel með vatni út um kvöldið og vitjuðu svo eldsnemma morguns.


Við megum því eiga von á góðu sumri samkvæmt þessu. Við óskum öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir veturinn.