Gleðilegt nýtt ár!

03.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við óskum nemendum okkar og fjölskyldum þeirra gleðilegs árs og þökkum fyrir það liðna!


 


Kennsla hefst á föstudegi, 4. janúar samkvæmt stundaskrá og vonandi koma allir úthvíldir og endurnærðir, tilbúnir að takast á við verkefni nýja ársins. Nemendur 9. bekkjar fá nýjar stundaskrár, lítilsháttar breytingar hafa verið gerðar á töflunum, m.a. vegna valtíma sem breyttust um áramót.