Gleðilega páska!
22.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við þökkum nemendum 9. bekkjar fyrir góða frammistöðu við æfingar og undirbúning árshátíðarinnar. Þeir sem ekki fóru á svið höfðu allir einhverjum öðrum hlutverkum að gegna, sumir búa til leikmuni, aðrir sjá um búninga og smink, upptökur á sýningum, eru sviðsmenn eða sjá um hljóð og ljós - það eru margir á bak við tjöldin í margvíslegum verkefnum, að ógleymdum þeim sem semja sjálft atriðið. Að þessu sinni var það Veturliði Snær sem samdi verkið og svo kallaði hann til aðstoðarmenn og hópurinn fínpússaði og lagaði það til í sameiningu.
En nú fer hópurinn í páskafrí og hvílir sig og skemmtir sér vonandi vel og kemur svo aftur tvíefldur í skólann miðvikudaginn eftir páska, þann 3. apríl.
Gleðilega páska!








