Gjöf til nemenda í smáskipanámi

29.09.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hraðfrystihúsið − Gunnvör h.f. gaf hverjum nemanda úr Grunnskólanum á Ísafirði, sem eru í smáskipanámi hjá Fræðslumiðstöðinni,  Sjómannabókina  eftir Pál Ægi Pétursson. Sjómannabókin er aðalkennslubókin í smáskipanáminu og tekur á flestu er varðar sjómennsku og skipstjórn á þessu stigi. Er þetta í annað sinn sem HG gefur grunnskólanemum þessa bók.


Nemendur úr Grunnskólanum á Ísafirði hafa í nokkur ár getað tekið smáskipanám hjá Fræðslumiðstöðinni sem valgrein og eru nú 14 nemendur í þessu námi.