Gestakennari í dönsku
03.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við höfum fengið gestakennara í dönsku Julie Fleichmann sem hóf störf hjá okkur í dag. Hlutverk hennar er að efla dönskukennslu, með áherslu á talað mál. Hún verður hér í ísafjarðarbæ fram að jólum, en þá mun hún fara til Akureyrar.
Við hlökkum mikið til að starfa með henni og væntum þess að það muni nýtast nemendum vel.








