Gengið yfir Þjófaskörð
01.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við fórum í fjallgönguna okkar á miðvikudaginn eins og til stóð og hún tókst með miklum ágætum. Mætingin hefði mátt vera betri en þau sem komu með, stóðu sig eins og hetjur. Þetta er nokkuð strembin ganga og tók u.þ.b. 4 1/2 klst. Veðrið var bara þægilegt, spáin sveik okkur reyndar svolítið því að gert hafði verið ráð fyrir bjartara veðri en það gerði ekkert til og engum varð kalt svo vitað sé, enda allir vel klæddir.
Við stoppuðum uppi í Þjófaskörðum og sátum með annan fótinn Skutulsfjarðarmegin og hinn Hnífsdalsmegin og borðuðum nestið þar. Nú er búið að koma fyrir kaðli Hnífsdalsmegin í skarðinu og það auðveldar fyrstu skrefin niður.
Það er eflaust misjafnt hvað fólk fær út úr svona fjallgöngum en fyrir marga er þetta nokkur sigur, auk þess er þetta holl hreyfing og útivist og við kynnumst betur umhverfi okkar og náttúrunni. Síðast en ekki síst eru göngurnar mikilvægar félagslega, það er gott að kynnast félögum sínum við aðrar aðstæður en bara í skólanum.








