Gamaldags kaffiboð

01.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Síðustu þrjár vikur höfum við verið að vinna með gamla tímann í bókunum Ísland áður fyrr. Í dag var var svo lokadagurinn í því verkefni og ver því efnt til gamaldags kaffiboðs, með engu kaffi þó. Í boðinu voru gamlir hlutir á sýningarborði sem allir fengu að skoða og prófa. Boðið var upp á lummur og klleinur eins og gert var í gamla daga og mjólk drukkin með sem hver og einn var sótti beint í beljuna. Ekki alveg ekta belju kannski en svona nútímaútgáfu af belju sem skilar af sér ískaldri mjólk. Einnig var boðið upp á húslestur þar sem hlustað var á þjóðsöguna um hana Búkollu. Kennarar mættu svo í prjónuðum flíkum úr sauðalitunum. Þegar þessu var svo lokið tókum við rennsli á árshátíðaratriðið okkar sem gengur vel að æfa.


Það eru svo fullt af myndum af atburðinum inn ámyndasíðunni okkar.