G.Í. í úrslit Skólahreysti

09.03.2016 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Grunnskólinn á Ísafirði sigraði í dag Vestfjarðariðilinn í Skólahreysti. Með sigri tryggði liðið sér sæti í úrslitunum, sem fara fram í næsta mánuði. Í öðru sæti varð Grunnskóli Vesturbyggðar og Grunnskóli Bolungarvíkur í því þriðja. Við óskum okkar fólki innilega til hamingju og erum virkilega stolt af þeim.