Fysta vikan liðin

30.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikan hefur gengið mjög vel og ótrúlegt hvað krakkarnir eru duglegir að aðlaga sig að skólastarfinu. Í næstu viku ætum við að fara í fjallgöngu upp í Stórurð, sjá vikuáætlun á bekkjarsíðunni. 


 


Eitt af mögum gullkornum vikunnar kom í sundtíma þar sem krakkarnir áttu að hoppa út í laugina. 


Barn: "Kennari, ég drukknaði! "


Kennari: " Nei, þá værir þú komin til himna."


Barn: " Ó,ó........ "