Fyrsta vikan að baki
06.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þá er fyrsta heila skólavikan að baki hjá 7. bekk. Við erum í upprifjun í íslensku og stærðfræði fyrir samræmd könnunarpróf sem verða síðar í mánuðinum. Í öðrum greinum er nýtt námsefni.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast með á vikuáætlunum sem við sendum heim í tölvupósti á föstudögum, en einnig eru þær hér inni á bekkjarsíðunni.








