Fyrsta vikan

30.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er fyrsta heila skólavikan liðin og ótrúlega margt skemmtilegt
gerst. Við unnum samkvæmt Byrjendalæsi og notuðum bókina Asnaskólinn  og fyrstu stafirnir sem við lögðum inn voru A og S.



Viðfangsefni í stærðfræði var ýmiskonar flokkun og enduðum á
að flokka ýmislegt dót sem fannst í skólanum sem vakti mikla lukku hjá krökkunum.
      


Mikil lífsleikni var í vikunni og einbeittum við okkur í að
fara í þarfirnar í Uppbyggingarstefnunni. Í lok vikunnar  lærðum við síðan um litahegðun, þ.e. rauð, gul, grá og græn hegðun. Þetta verður kynnt á haustfundi með foreldrum.


 


Eitt af mögum gullkornum vikunnar kom í sundtíma, þar sem
nemendur áttu að hoppa í laugina.


 


Nemandi: „Kennari, ég drukknaði !¨“

Kennari: „Nei, þá værir þú komin til himna.“

Nemandi: „ Ó,ó……….“