Fyrirlestur með Hugo Þórissyni
30.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á morgun, fimmtudaginn 31. janúar, munu foreldrafélög grunnskólanna á norðanverðum Vestfjörðum bjóða upp á skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur með Hugo Þórissyni sálfræðingi, um samskipti foreldra og barna. Fyrirlesturinn er haldinn á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði og hefst kl. 20:00. Allir áhugasamir eru velkomnir, sama hvort þeir eiga börn á grunnskólaaldri eða ekki.
Nánari upplýsingar má sjá hér.
Nánari upplýsingar má sjá hér.








