Fundur vegna haustferðar
22.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það er ekki seinna vænna að fara að hugsa um næsta vetur, svo að næsta þriðjudag, 28. maí kl. 18:00 boðum við til fundar í dansstofu skólans til að ræða gönguferð næsta hausts og fleira sem varðar starfið næsta vetur.
Hefð er fyrir því að 10. bekkur fari með báti ýmist í Aðalvík, Hesteyri eða Grunnavík og gisti þar eina nótt í tjöldum. Hvert farið er, veltur á því hvar við fáum aðgang að húsnæði, því fararstjórar gista innanhúss og börnin þurfa að geta notað salerni og haft húsaskjól ef eitthvað kemur upp á. Svo að nú er stóra spurningin hvort einhverjir úr hópi aðstandenda geta boðið hópnum aðgang að húsi á þessum slóðum.
Fararstjórar verða umsjónarkennarar og stuðningsfulltrúar og 2-3 úr hópi foreldra.
Það er mjög áríðandi að allir komi á þennan fund og vonandi sjáumst við öll þar.