Fundur stjórnar þann 13. maí 2013

29.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mættar: Birna Lárusdóttir, Thelma Hjaltadóttir Martha Lilja M. Olsen, Þórdís Lilja Jensdóttir og Heiðrún Tryggvadóttir.


 



  1. Söfnunarátak vegna leiktækja á skólalóð


Rætt um mögulegt söfnunarátak sem hugur er á að hefja á næsta skólaári.


 



  1. Félagsgjöld FFGÍ


Samþykkt að hækka félagsgjöld úr 1.500 krónum í 2.000 krónur.


 



  1. Viðmiðunarreglur stjórnar vegna úthlutunar úr sjóði.


Lagðar fram og samþykktar vinnureglur stjórnar vegna úthlutunar úr sjóði. Þær eru svohljóðandi:


 


 


Viðmiðunarreglur um úthlutanir úr sjóði


Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði


 


 



  • Bekkjarfulltrúar geta sótt um styrk að upphæð allt að 5.000 kr. fyrir hvern bekk til að kaupa veitingar, verðlaun eða annað fyrir bekkjarskemmtanir. Hver bekkur getur sótt um styrk einu sinni á önn og skila þarf kvittun til gjaldkera.


 



  • 10. bekkur getur sótt um fjárveitingu sem nemur útgjöldum við leigu á dúkum vegna þorrablóts í GÍ. 


 



  • Fyrirlestur/námskeið fyrir foreldra (1 til 2 yfir veturinn) gjarnan í samvinnu við Foreldrafélög grunnskólanna á svæðinu.


 



  • Styrkja má leiksýningar fyrir nemendur, verkefnið Tónlist fyrir alla og fleira sem stjórn ákveður.


 



  • Styrkir til skólans; ekki skal veita meiri peningum til styrkja til skólans en sem nemur þriðjungi af eignum sjóðsins hverju sinni. Þó má gera undantekningar ef sérstakar aðstæður koma upp.


 



  • Kaupa má veitingar á stjórnarfund fyrir sjóðspeninga einu sinni yfir veturinn.


 



  • Miða skal við að staðan á sjóði félagsins fari aldrei undir kr. 100.000 yfir veturinn.


 



  1. Samþykkt að gefa starfsfólki skólans afmæliskringlur úr bakarí í þakkargjöf fyrir gott samstarf í vetur.


 



  1. Ákveðið að óska eftir samráðsfundi með skólastjórnendum.


 



  1. Ákveðið að stefna á bókasöfnun fyrir skólabókasafnið í samstarfi við Eymundsson í haust.


 



  1. Rætt um fyrirkomulag aðalfundar og hugmyndir að fyrirlesurum.


 



  1. Ákveðið að senda út fréttabréf á næstu dögum.


 



  1. Samþykkt að leggja lið söfnun vegna Ingibjargar Sigríðar Guðmundsdóttur kennara mmeð 25 þúsund króna framlagi.


 


Fundi slitið kl. 17.40