Fundur stjórnar 5. nóvember kl. 16

03.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mættir Birna Lárusdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja M. Olsen, Thelma Hjaltadóttir og Þórdís Lilja Jensdóttir.


 



  1. Jólaföndur


Rætt um jólaföndrið en ákveðið er að það verði frá kl. 11-13 þann 1. des. Ákveðið var að senda út fréttabréf um það sem framundan er eins og jólaföndrið og bókasöfnun.


 



  1. Bókasöfnun

  2. Talað um að vekja athygli á bókasöfnun félagsins á foreldradegi miðvikudaginn 14. nóvember. Eins að minna á hana í BB, á Facebooksíðu félagsins og með tölvupósti.


 



  1. Verkefnahópar um heimanám


 


Óskað var eftir því að foreldrar kæmu að uppbyggingu heimanámsstefnu skólans. Samþykkt var að senda póst á alla bekkjatengiliði og óska eftir þátttakendum.


 



  1. Skólalóð


Rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir við skólalóð en ekkert hefur enn gerst í málefnum hennar.


 



  1. Fyrirlestur með Húgó Þórissyni.


Enn er ekki komið á hreint hvenær Hugó kemst. Lagt var til að leita til annarra foreldrafélaga á svæðinu um samstarf og fá þau til að taka þátt í kostnaði. Einnig að óska eftir styrk frá skólasviði.


 



  1. Rætt um eineltisviku í Grunnskólanum á Ísafirði.


 



  1. Varpað var fram þeirri hugmynd að stofna til félagsskapar foreldra barna sem eiga erfitt uppdráttar í skólanum (til að mynda lesblindir, þeir sem eru með ADHD o.s.frv.) Stefnt var á að boða slíkan fund eftir áramót.


 



  1. Niðurstöður samræmdra prófa.


 


Rætt var um það af hverju nemendur GÍ eru svona neðarlega í samanburði yfir landið. Ákveðið var að ræða við skólastjórnendur um það hvernig brugðist er við niðurstöðum prófanna.


 


Fundi slitið kl. 17.08.