Fundur í skólaráði 20. september 2011
26.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mættir: Gunnlaugur Jónasson, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja Olsen, Alma Björk Sigurðardóttir, Valgerður Gísladóttir, Erna Sigrún Jónsdóttir, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir. Málfríður Helgadóttir og Finney Anita Jónsdóttir fulltrúar nemenda mættu ekki.
1. Nýir aðilar í skólaráði, Heiðrún, Martha, Alma Björk og Erna Sigrún, boðnir velkomnir.
2. Farið yfir hlutverk skólaráðs samkvæmt grunnskólalögum.
3. Rýmingaráætlun kynnt. Stefnt er að rýmingaræfingu í október.
4. Teymi kennara kynnt og helstu verkefni þeirra.
5. Smiðjan kynnt. Starfar með svipuðu sniði og síðasta ár, nema nú er einn starfsmaður í stað nokkurra í fyrra.
6. Starfsáætlun fyrir árið 2011-2012 lögð fyrir. Viðbót frá í fyrra er Símenntunaráætlun og Jafnréttisáætlun.
Breytingar á námsmati ræddar. Í umræðum um símenntunaráætlun kom frá kennurum að ekki hefði verið skyndihjálparnámskeið lengi og óskuðu þeir eftir slíku. Foreldrar óskuðu eftir stefnu skólans í heimavinnu, finnst ekki vera
samræmi milli skólastiga.
7. Sagt frá mætingarverkefni. Skráningar fyrir hvern dag í september teknar saman.
8. Önnur mál.
Foreldrar og starfsfólk var sammála um að uppfæra þyrfti heimasíðu skólans og færa hana til nútímans.
Gunnlaugur Jónasson hefur setið í skólaráði í tvö ár og óskar eftir að hætta. Honum voru færðar þakkir fyrir gott innlegg á þessum árum. Rætt um hver gæti tekið við af honum. Stungið var upp á Ólafi hótelstjóra.
Ekki fleira rætt.
Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri.








