Fundur í skólaráði 17. janúar 2012
26.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mættir: Ólafur Örn Ólafsson, Martha Lilja Olsen, Heiðrún Tryggvadóttir, Erna Sigrún Jónsdóttir, Alma Björk Sigurðardóttir, Málfríður Helgadóttir, Finney Anita Jónsdóttir og Sveinfríður Olga Veturliðadóttir.
Hlutverk skólaráðs (sbr. grunnskólalög) er meðal annars að fylgjast almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólaráðsfólk fór um skólann og skoðaði húsnæðið. Ýmsar athugasemdir voru gerðar, m.a. að handriði við stiga í Gagnfræðaskóla væri of lágt. Síðastliðið ár kom aðili frá Vinnueftirlitinu og mældi handriðið og umsjónarmaður Eignarsjóðs tók það að sér að kanna hvernig hægt væri að breyta handriðinu. Skólastjóri fylgir málinu eftir. Skólaráð gerði einnig fyrirspurn um hvernig rýmingu úr matsal væri háttað. Rýmingaræfingar hafa ekki tekið til matsalarins og verður það skoðað fyrir næstu æfingu og gert ráð fyrir rýmingu úr matsal í nýrri rýmingaráætlun. Spurt var um eldvarnarteppi á heimilisfræðistofum og eru eitt teppi í hvorri stofu. Heimilisfræðikennari sagði okkur að slökkviliðsmenn teldu það nægja. Það þarf hins vegar að athuga með slökkvitæki. Skólaráð vill koma á framfæri áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á skólalóð við Kaupfélagið en gert er ráð fyrir að minnka skólalóðina og koma fyrir bílastæðum. Að síðustu kom fyrirspurn frá nemandi í ráðinu hvort hægt væri að setja myndavélar á ganga skólans þar sem það væri nokkuð um það að farið væri í úlpuvasa og ýmislegt tekið úr þeim.
Fleira ekki gert.
Sveinfríður Olga Veturliðadóttir,
skólastjóri.








