Fundur í skólaráði 15. nóvember 2011

26.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Mættir: Ólafur Örn Ólafsson, Heiðrún Tryggvadóttir, Martha  Lilja Olsen , Valgerður Gísladóttir, Erna Sigrún Jónsdóttir, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir og Finney Anita Jónsdóttir.



1.            Áður en fundur hófst óskaði Marhta Lilja eftir því að gögn sem fara á yfir á fundum skólaráðs verði send fundarmönnum með fyrirvara.



2.            Reglugerð (nr. 1040/2011)  um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum kynnt.



3.            Tillaga að kennslustundaúthlutun fyrir skólaárið 2011-2012 kynnt. Tillagan gerir ráð fyrir 800 stunda úthlutun sem er fækkun um 117 stundir milli ára.


 


4.            Við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs er gert ráð fyrir því að enginn starfsmaður skólans, hvort sem hann er í gæslu eða ekki, fái greiddan mat.



5.            Ný heimasíða skólans verður tekin í notkun 16. nóvember.



6.            Starfsmannahandbók er í endurskoðun og var lögð fram (í handriti) til kynningar.



7.            Skipulag desembermánaðar kynnt sem og vorannar.


 


8.            Önnur mál.


 


Fulltrúar foreldra óskuðu eftir því að fulltrúi starfsfólks myndi sitja sem áheyrnarfulltrúi í foreldrafélaginu.


 


Foreldrafélagið er tilbúið að styrkja skólann ef boðið verður upp á verkefnið Tónlist fyrir alla.



Foreldrar lýstu yfir áhyggjum af fyrirhugaðri breytingu á Kaupfélagslóðinni.



Ólafur Örn Ólafsson er nýr aðili í skólaráði og er hann fulltrúi nærsamfélagsins.



Ekki fleira rætt.


 


Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri.