Fundur í byrjun árs 2013 kl. 16

03.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mættir Heiðrún Tryggvadóttir, Birna Lárusdóttir, Martha Lilja M. Olsen, Thelma Hjaltadóttir og Þórdís Lilja Jensdóttir.


 



  1. Fyrirlestur Hugós Þórissonar


Fyrirlesturinn mun fara fram 31.01 2013. Ísafjarðarbær mun borga flug. Salur Stjórnsýsluhússins mun verða borgaður af styrktaraðila sem ekki vill láta nafns síns getið og Hótel Ísafjörður býður gistinguna.


 


Fyrirlesturinn er sameiginlega í boði foreldrafélaganna í Bolungarvík, á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri, Súðavík og Þingeyri.


 



  1. Frímínútnagæsla


Umræður um frímínútnagæslu og framkvæmd hennar. Samþykkt að senda bréf á Jónu og Olgu skólastjórnendur og lýsa yfir áhyggjum af frímínútnagæslu og hvernig brugðist er við veikindum starfsmanna á vakt.


 



  1. Framkvæmd litlu jóla GÍ


Minna þarf skólann á að samræma reglur sem gilda varðandi litlu jól svo ekki skapist leiðindi en borið hefur á ósamræmi, t.d. varðandi gos o.fl. á litlu jólunum.


 



  1. Forvarnir – kynferðislegt áreiti


Ákveðið að senda póst á skólastjórnendur og spyrjast fyrir um hvernig forvörnum og fræðslu varðandi þennan málaflokk er háttað.


 



  1. Bókasöfnun


Fyrirhuguð bókasöfnun er í vinnslu. Nauðsynlegt er að hún sé í tengslum við útsölu.


 



  1. Skólalóðarmál


Ákveðið að senda fyrirspurn á Jóhann Birki Helgason sviðstjóra umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar, um hvar málefni skólalóðarinnar eru stödd.


 



  1. Beiðni frá Ómari Helgasyni


Ómar Helgason hefur beðið Foreldrafélag GÍ um að vera milligönguaðili í að sækja um styrki vegna fyrirhugaðrar hreystibrautar við skólann. Félagið samþykkir að gera svo háð því að skipulag skólalóðar liggi samþykkt fyrir.


 


Fundi slitið kl. 17.15.