Fundur 22. maí 2012

02.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Fundur í skólaráði 22. maí:



Mættir: Heiðrún Tryggvadóttir, Martha Lilja Olsen, Erna Sigrún Jónsdóttir, Alma Björk Sigurðardóttir, Jóna Benediktsdóttir, Guðbjörg Halla Magnadóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir.



Valgerður Gísladóttir var veik, Ólafur mætti ekki, Málfríður Helgadóttir var í skólaferðalagi og Finney mætti ekki.



Til þessa fundar var öllum stjórnendum ásamt stjórn nemendafélagsins boðið en nemendur mættu ekki.



1.            Skipulag næsta vetrar:  Farið yfir stofuskipan næsta vetur.  Litlar breytingar frá því sem nú er.  Starfsmannamál rædd; einum kennara sagt upp, þrír kennarar í leyfi næsta ár. Námsráðgjafi hefur óskað eftir að vera færð í starfi og mun starfa í framtíðinni á leikskóla. Sagt frá því að skólinn sótti um þróunarstyrk til að fara af stað með byrjendalæsi en fengum ekki.  Samt sem áður hefur verið ákveðið að fara af stað með verkefnið. Rætt hvernig við þurfum að fjármagna það, t.d. að fresta innkaupum á skjávörpum og fleira.



2.            Framkvæmdir: Lítið verður um framkvæmdir í sumar.  Reyna á að mála anddyrið Austurvegsmegin úti.  Setja opnanlegt fag á vinnuherbergi kennara.  Hækka handriðið í gagnfræðaskóla (það er of lágt samkv. vinnueftirliti).



3.            Skólalóðin við Kaupfélag var rædd. Ákveðið var að bíða með ályktun þar sem svar kom frá sviðsstjóra tæknisviðs að lóðin yrði óbreytt næsta skólaár og í haust ætti að gera skipulag að skólalóðinni og að fundað yrði með stjórnendum.  Send hefur verið ósk um að fulltrúar foreldra komið að þessar vinnu.



4.            Ákveðið að boða stjórna nemendafélagsins á fyrsta fund skólaráðs á næsta skólaári og heyra rödd nemenda.  Ósk frá foreldrum að Rósaballið verði m.a. rætt.



Fundi slitið



Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri.