Fundur 20. mars 2012
02.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Fundur í skólaráði 20. mars 2012
Mættir: Martha Lilja Olsen, Heiðrún Tryggvadóttir, Erna Sigrún Jónsdótti, Valgerður Gísladóttir, Finney Ólafsdóttir og Sveinfríður Olga Veturliðadóttir.
1. Rekstraráætlun skólans fyrir árið 2012 lögð fram til kynningar.
2. Skýrsla 1 frá sjálfsmatsteymi skólans kynnt. Í þessari skýrslu voru helstu áhersluþættir; upplýsingastreymi innan skóla, stuðningur stjórnenda við starfsmenn, kennsluhættir og fagmennska kennara, mat nemenda á verkstjórn kennara og samskiptum sínum við þá.
3. Farið yfir símenntun, en helstu áherslur verða málörvun í skólastarfi, stærðfræðinámskeið fyrir kennara á yngsta- og miðstigi, ART námskeið, Uppbyggingarstefnan (unglingastigskennarar). Einnig er verið að athuga með námskeið um einhverfu, mat á talna- og aðgerðarskilningi, nám við hæfi. GÍ sótti um þróunarstyrk fyrir byrjendalæsi.
4. Undirbúningur að skipulagi næsta skólaárs. Kennslustundaúthlutun fyrir næsta ár liggur fyrir og fær GÍ 824 stundir sem er fækkun upp á 93 stundir. Ljóst er að kennurum fækkar og einnig mun öðrum starfsmönnum fækka.
5. Skóladagatal lagt fram til kynningar.
6. Önnur mál. Rætt um sameiginlegan fund foreldra, kennara og stjórnenda þar sem ýmis mál yrðu reifuð, nokkurs konar spjallfundur.
Fleira ekki gert.
Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri.








