Frí og ferðalög

24.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Veikindi og leyfi hafa sett mark sitt á skólastarfið undanfarna daga. Margir krakkar í 5. bekk eru farnir á Andrésarleikana á Akureyri og er það ánægjulegt hve margir í árganginum stunda íþróttir af einhverju tagi. Aðrir eru farnir annað í frí með fjölskyldu sinni og bæta þar með einum degi við aukafrídaginn, annan í sumri. Við vonum að allir komi endurnærðir og fullir af orku aftur í skólann hvort sem þeir verða heima eða á ferðalagi, tilbúnir að takast á við síðustu vikur skólaársins.


Gleðilegt sumar.