Frábær vorverkadagur í Tunguskógi

31.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun hjóluðum við inn í Tunguskóg og tókum til hendinni í skógræktinni.  Gísli Eiríksson frá skógræktarfélaginu lóðsaði okkur um og sá okkur fyrir verkfærum.


 


Krakkarnir söguðu eldivið sem notaður verður í útikennslustofunni okkar í Jónsgarði næsta vetur og var afraksturinn kerruhlass af eldivið! 


Einnig klipptu þau og snyrtu greinar meðfram stígunum í skóginum og svo voru nokkrir sem gerður við brýr yfir litla læki. 


 


Allir skiluðu góðu dagsverki og erum við mjög ánægð með hvernig til tókst.


Á myndasíðunni eru fleiri myndir úr ferðinni.


 


Á mánudaginn ætlum við að hjóla inn í golfskála og fara í golf. 


 


Þeir sem búa í Holtahverfi eiga að hjóla að heiman og vera komnir við golfskálann klukkan 9:00.


 


Þeir sem búa í bænum og Hnífsdal hittast við sundlaugina klukkan 8:20, við leggjum af stað klukkan 8:30.


 


Við ætlum að grilla pylsur þannig að þau koma með pylsur og brauð og við sköffum meðlætið.


 


Á þriðjudaginn verður svo leikjadagur í Torfnesi, mæting hjá öllum klukkan 9:00 fyrir utan íþróttahúsið í Torfnesi með nesti.


 


Á miðvikudagur er starfsdagur hjá okkur og frí hjá krökkunum.


 


Á fimmtudaginn verður svo einkunna afhending í kennslustofunni klukkan 10:00.