Frábær útivistadagur

22.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Útivistadagurinn gekk mjög vel. Fjallið fylltist af kátum krökkum, allir voru með eitthvað til að renna sér á.  Veðrir lék við okkur og glaðir og kátir krakkar skiluðu sér í skólann á miðvikudaginn eftir góða útirveru.


Nú förum við hins vegar að huga að árshátíðinni sem er fyrir páska eins og vanalega.  Yfirskrift árshátíðarinnar er Lífið er leikur.  Heimavinnan í þessari viku tengist undirbúningi okkar og ætla krakkarnir að taka viðtal við foreldra, ömmu og afa og kanna hvaða leikir voru vinsælir í þeirra æsku.