Forvarnardagur, þemadagar og fleira
25.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Næsta vika verður býsna óhefðbundin í skólanum. Hún hefst með vetrarfríi á mánudaginn. Þriðjudagurinn er eini dagurinn sem kennt verður alveg skv. stundaskrá, því að á miðvikudaginn höldum við upp á forvarnardaginn.
Það er verkefni sem unnið hefur verið í 9. bekk á hverju ári í mörg ár en það er á vegum íþrótta- og tómstundahreyfinganna í landinu. Unnið verður að þessu í 2-3 kennslustundir og svo geta nemendur tekið þátt í ratleik á netinu og/eða myndbandasamkeppni og eru vegleg verðlaun í boði fyrir hvort tveggja. Nemendur ráða hvort þeir taka þátt í ratleiknum og myndbandasamkeppni og gera það þá í frítíma sínum. nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.forvarnardagur.is
Síðan eru þemadagar á fimmtudag og föstudag. Þá verður unnið í hópum, yngri og eldri nemendur saman og farið á alls konar skemmtilegar stöðvar.








