Forvarnardagur
09.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag var forvarnardagurinn var haldinn í dag hjá 9. bekk og byrjaði með að skólastjóri sagði frá verkefninu og hvatti nemendur til að huga vel að forvörnum .
Pétur Markan framkvæmdastjóri HSV ræddi við nemendur um forvarnir og tómsundaiðkun.Næst a dagskrá var spilað myndband þar sem forseti íslands Ólafur Ragnar Grímsson talaði til nemenda um verkefnið.
Nemendur skiptu sér síðan í hópa og hver hópur fékk verkefni til að vinna að í tengslum við daginn, settu síðan niðurstöður á plakat og skliuðu að lokum á heimasíðu forvarnardagsins.








