Foreldraviðtöl
07.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Miðvikudaginn 8. febrúar verða foreldraviðtöl í skólanum. Við ætlum að nota tækifærið og biðja foreldra um að taka stutta könnun sem er á tölvutæku formi. Hvetjum við alla til að taka þátt, tekur bara nokkrar mínútur.
Bréfið sem fór heim.
Ágætu foreldrar
Á vorönninni vinnum við í skólanum að mati á samstarfi heimilis og skóla. Við viljum því biðja ykkur um að svara nokkrum spurningum þegar þið hafið lokið foreldraviðtölum í skólanum á miðvikudaginn. Könnunin, sem er þrennskonar eftir því á hvort börn eru á yngsta, mið eða unglingastigi, verður opin á heimasíðu skólans. Hægt er að fara í tölvu á bókasafni, í tölvustofu og í stofu 208 á unglingagangi til að svara. Á þessum stöðum verður starfsfólk til aðstoðar ef eitthvað virkar ekki sem skyldi. Til að flýta fyrir ykkur sendum við hér með spurningarnar svo þið getið verið búin að ákveða hvernig þið svarið áður en þið komið. Svör við þessum spurningum eru mikilvæg fyrir okkur svo vonandi gefa sér allir tíma til að svara.
Fyrir foreldra barna í 5. - 7. bekk
Hve langan tíma telur þú æskilegt/eðlilegt að nemendur noti til heimanáms?
( ) Vil ekkert heimanám
( ) Um það bil 30 mínútur á dag
( ) Um það bil 60 mínútur á dag
( ) Meira en 60 mínútur á dag
Hvernig gengur þér að fylgjast með námi barnsins þíns?
( ) Mjög vel
( ) Vel
( ) Fremur illa
( ) Fylgist ekki með náminu
Hversu aðgengilegar eru upplýsingar um skólastarfið að þínu mati?
( ) Mjög aðgengilegar
( ) Aðgengilegar
( ) Ekki nógu aðgengilegar
Hversu oft athugar þú skráningar fyrir þitt barn í Mentor?
( ) Daglega
( ) Vikulega
( ) Einu sinni í mánuði
( ) Einu sinni á önn
( ) Aldrei
Hvar færð þú helst upplýsingar um skólastarfið?
( ) Á vikuáætlun
( ) Á heimasíðu skólans
( ) Með tölvupósti
( ) Hjá barninu mínu
Hversu ánægð/ur eða óánægð/ur ert þú með umsjónarkennara barnsins þíns?
( ) Mjög ánægð/ur
( ) Ánægð/ur
( ) Frekar óánægð/ur
( ) Mjög óánægð/ur
Hvernig er viðhorf þitt til skólans almennt?
( ) Mjög jákvætt
( ) Jákvætt
( ) Fremur neikvætt
( ) Mjög neikvætt








