Foreldrafundur og myndir úr fjallgöngunni

21.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Miðvikudaginn 19. september s.l. var haustfundur með foreldrum.  Fundurinn og námskeiðið tókst afar vel og þökkum við þeim foreldrum sem sáu sér fært að mæta, sem var nú meirihlutinn.  Við minnum svo á foreldranámskeiðið næstkomandi miðvikudag.


Nú höfum við loksins sett myndir úr fjallgöngunni inn á myndasíðuna.  Fleiri myndir úr skólastarfinu eiga eftir að birtast þar.