Foreldrafundur - sjálfsmat

06.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á miðvikudag í  næstu viku 12. nóv er foreldrafundur hér í skólanum þar sem nemendur mæta með foreldrum sínum til fundar við umsjónarkennara.


Nú í dag fá nemendur með sér heim sjálfsmatsblað, sem þau eiga að fylla út með foreldrum sínum og mæta svo með í foreldraviðtalið


Með þessu blaði eiga þau að leggja  mat  á nám sitt og gera sér markmið fyrir næstu misseri.


Nauðsynlegt er að mæta með blaðið í viðtalið.