Fjöruferð
07.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessi ferð stóð sko alveg undir væntingum. Eins og við lofuðum fóru einhverjir blautir heim, en það fylgir bara. Þegar við komum að fjörunni var hún heldur minni en við ætluðum. Við æddum þó niður og nýttum okkur vel það sem við höfum. Fyrst var nemendum skipt í hópa til að vinna stutt verkefni á tússtöflu, eftir það var frjáls leikur. Það var ýmislegt í gangi, margar byggingar litu dagsins ljós. Við urðum vitni af litlu snjóflóði úr hlíðinni á móti sem féll með látum. Bökuð var afmæliskaka fyrir Birgittu afmælisbarn. Enginn stakk sér til sunds en sumir voru ansi nálægt því ;0) Myndir úr ferðinni eru á myndasíðunni okkar.








