Fjör á bekkjarskemmtun
05.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag var bekkjarskemmtun hjá 1. bekki eftir matinn. Það mátti koma með smá nammi eða snakk og dót. Það var opið hús í bekkjarstofunum og krakkarnir fóru á milli, spjölluðu, léku sér með dótið og borðuðu nammi. Einnig var boðið upp á bíó í stofunni hjá 1.ÁH. Krökkunum í 1. HA fannst mjög spennandi að fá að kíkja inn í stofuna hjá 1.ÁH þar sem við komum alltaf saman í 1. HA stofunni af því hún er stærri.








