Fjölmenningarkvöld 10. bekkjar

25.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Að kvöldi sumardagsins fyrsta, 24. apríl, hélt 10. bekkur fjölmenningarkvölld í Edinborgarhúsinu. Þar fóru fram ýmis skemmtiatriði, fyrst steig hljómsveit á svið, skipuð drengjum úr 9. og 10. bekk og spilaði lagið "Rangur maður." Það voru hrein öfugmæli, því þeir voru greinilega réttir menn á réttum stað og tíma. Síðan rak hvert atriðið annað, Hilmar Adam Jóhannsson lék tvö verk, eitt á píanó og annað á fiðlu við undirleik móður sinnar, Beötu Joó. Veturliði Snær Gylfason lék tvö verk á píanó, Ingunn Ósk Kristjánsdóttir og Jóhanna Steinþórsdóttir léku saman á saxófón og klarinett  og einnig lék Jóhanna á píanó. Erlendir gestir sem voru hér vegna Comeniusarverkefnisins tóku einnig þátt í dagskránni, Sebastian Byma frá Zrabrze í Póllandi söng nokkur lög og lék undir á gítar og Marcelo Menino og Leonel Carreira frá Leiría í Portúgal léku saman á gítar og klarinett. Að lokum sýndu nemendur 10. bekkjar gömlu dansana og vöktu mikla lukku, enda skörtuðu stúlkurnar íslenskum þjóðbúningum og allir stóðu sig vel. Dagskránni lauk svo með því að allir í salnum sungu saman lagið góða, Meistari Jakob, á mörgum tungumálum.


Þessi samkoma var vel sótt, nemendur úr 8. og 9. bekk fjölmenntu og einnig var fjöldi kennara og foreldra í salnum og allir skemmtu sér hið besta.


Myndir frá fjölmenningarkvöldinu eru í myndasafninu hér vinstra megin á síðunni.