Fjölbreytt vika að baki
04.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við erum búin að taka fyrsta hraðlestrarpróf vetrarins. Þeir sem ekki náðu 220 atkvæðum á mínútu taka næsta próf sem verður um miðjan október. 8 krakkar fara í lestrarátak tvisvar í viku í nokkrar vikur og svo verður skipt um hóp.
Bekkurinn er þéttur og krakkarnir eru góðir hvert við annað sem skiptir svo sannarlega máli. Við erum alltaf að æfa okkur þegar allir eru saman í kennslustundum að hafa góðan vinnufrið ;-)








